Fréttir

true

Nota ensku í samskiptum sín á milli

Á fundi skólanefndar Grundarfjarðarbæjar í byrjun vikunnar voru m.a. ræddar niðurstöður úr könnun meðal nemenda í 6.-10. bekk grunnskólans frá því í október en síðari hluti hennar var gerður nú í febrúar. Fram kom í fundargerð að út frá niðurstöðum úr könnuninni verið ráðist í úrbætur. Áhersluatriði komandi skólaárs verður m.a. að auka aga í…Lesa meira

true

Snjóar um sunnanvert landið í kvöld

Í kvöld er spáð snjókomubakka inn á sunnan- og suðvestanvert landið. Vegagerðin bendir á að frá Sandskeiði og austur yfir Hellisheiði sé reiknað með allhvössum vindi að auki og blindu frá því í kvöld og fram yfir morgunumferðina. Syðst á landinu, svo sem í Mýrdal, verður hríðarveður og skafrenningur og þar er hætt við að…Lesa meira

true

Gera 60+ þjónustukönnun

Velferðar- og fræðslunefnd Hvalfjarðarsveitar stendur nú fyrir þjónustukönnun meðal íbúa 60 ára og eldri í sveitarfélaginu. Markmið könnunarinnar er að fá fram fjölbreytt sjónarmið um hvernig megi bæta og þróa þjónustu við þennan aldurshóp enn frekar í framtíðinni. Svör sem berast eru nafnlaus og meðhöndluð sem trúnaðarmál. Í júlí 2024 gaf Hvalfjarðarsveit út upplýsingabækling fyrir…Lesa meira

true

Forgangsakstur slökkviliða algengari á landsbyggðinni

Verkefni slökkviliða landsins á síðasta ári voru 2.542 í heildina. Þar eru talin bæði lögbundin verkefni og önnur verkefni sem slökkviliðin taka að sér. Þetta kemur fram í tölfræði úr útkallskýrslugrunni slökkviliða sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur unnið fyrir 2025. Slökkvilið landsins sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum þegar kemur að slökkvi- og björgunarþjónustu sveitarfélaga.…Lesa meira

true

Gleðilegan bolludag!

„Ég málaði mig einmitt fyrir daginn, vissi að þú myndir koma,“ sagði María Rós Björnsdóttir í Kallabakaríi á Akranesi glöð í bragði þegar blaðmaður Skessuhorns var þar í morgun að bolla sig upp í tilefni dagsins. Fjölmenni var þá í bakaríinu og flestir að sækja bollur fyrir heimili eða vinnustaði. Þar var hægt að kaupa…Lesa meira

true

Málefni velferðarnefnda á Snæfellsnesi rædd

Málefni velferðarnefnda voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar Snafellsbæjar 5. febrúar síðastliðinn. Í fundargerð kemur fram að þangað mætti Ingveldur Eyþórsdóttir, forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, og ræddi nefndir sem falla undir félags- og skólaþjónustuna. Lagði hún til að velferðarnefndir hvers sveitarfélags fyrir sig yrðu lagðar niður og stofnuð yrði ein velferðarnefnd fyrir svæðið, sem…Lesa meira

true

Lárus og Birgir þjálfa meistaraflokk Skallagríms

Lárus Grétarsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks Skallagríms í knattspyrnu. Hann býr yfir mikilli reynslu af þjálfun og hefur komið að uppbyggingu og þjálfun fjölmargra öflugra leikmanna í gegnum tíðina. Árið 2016 var hann þjálfari sameiginlegs liðs Fram og Skallagríms og þekkir því vel til þeirra leikmanna sem komu úr því samstarfi. Þá hefur Birgir…Lesa meira

true

Hættir í forystu VG

Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður VG hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til forystu hjá Vinstri grænum á landsfundi flokksins í mars. Hann rifjar upp aðkomu sína að stjórnmálum í færslu á Facebook og tilgreinir helstu verkefni í ráðuneytum umhverfis- og félagsmála. Hann kveðst fagna málum eins og hækkun veiðigjalda, lögfestingu Samnings Sameinuðu…Lesa meira

true

Nýr prófastur settur í embætti

Í gær fór fram guðsþjónusta í Reykholtskirkju í Borgarfirði. Þar var innsetning sr. Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur sóknarprests sem prófasts Vesturlandsprófastdæmis. Það var Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands sem setti Maríu í embættið. Brynjólfur Guðmundsson í Hlöðutúni og sr. Ólöf Margrét Snorradóttir voru vottar við athöfnina. Í athöfninni leiddi kórfólk úr héraði söng undir stjórn Dóru…Lesa meira

true

Sigur að hluta í Hvalsmálinu

Héraðsdómur Vesturlands kvað í síðustu viku upp dóm í svokölluðu Hvalsmáli, en það var Verkalýðsfélag Akraness sem höfðaði málið fyrir hönd félagsmanna sinna. Málið snýr að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur þáverandi matvælaráðherra sumarið 2023 um að flauta af með engum fyrirvara hvalveiðivertíð sem þá var að hefjast þrátt fyrir að starfsmenn væru þegar mættir til vinnu…Lesa meira