Af Snæfellsnesi. Ljósm. gj

Málefni velferðarnefnda á Snæfellsnesi rædd

Málefni velferðarnefnda voru til umræðu á fundi bæjarstjórnar Snafellsbæjar 5. febrúar síðastliðinn. Í fundargerð kemur fram að þangað mætti Ingveldur Eyþórsdóttir, forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, og ræddi nefndir sem falla undir félags- og skólaþjónustuna. Lagði hún til að velferðarnefndir hvers sveitarfélags fyrir sig yrðu lagðar niður og stofnuð yrði ein velferðarnefnd fyrir svæðið, sem stýrt yrði af Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Bæjarstjórn samþykkti að senda erindi til Grundarfjarðarbæjar, Eyja- og Miklaholtshrepps og Sveitarfélagsins Stykkishólms og leggja það til að velferðarnefndir sveitarfélaganna verði færðar undir Félags- og skólaþjónustuna.