Guðrún Karls Helgudóttir biskup og María Guðrúnar Ágústsdóttir sóknarprestur og prófastur.

Nýr prófastur settur í embætti

Í gær fór fram guðsþjónusta í Reykholtskirkju í Borgarfirði. Þar var innsetning sr. Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur sóknarprests sem prófasts Vesturlandsprófastdæmis. Það var Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands sem setti Maríu í embættið. Brynjólfur Guðmundsson í Hlöðutúni og sr. Ólöf Margrét Snorradóttir voru vottar við athöfnina. Í athöfninni leiddi kórfólk úr héraði söng undir stjórn Dóru Ernu Ásbjörnsdóttur organista. Viðstaddir athöfnina var m.a. héraðsnefndarfólk, prestar, sóknarnefndarfólk og konur úr Kvenfélagi Reykdæla sem reiddu fram kirkjukaffi að athöfn lokinni.