Gengið frá samningi. F.v. Lárus, Sölvi G Gylfason og Birgir Theodór.

Lárus og Birgir þjálfa meistaraflokk Skallagríms

Lárus Grétarsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks Skallagríms í knattspyrnu. Hann býr yfir mikilli reynslu af þjálfun og hefur komið að uppbyggingu og þjálfun fjölmargra öflugra leikmanna í gegnum tíðina. Árið 2016 var hann þjálfari sameiginlegs liðs Fram og Skallagríms og þekkir því vel til þeirra leikmanna sem komu úr því samstarfi. Þá hefur Birgir Theodór verið ráðinn aðstoðarþjálfari. Hann þekkir félagið sömuleiðis vel. Birgir Theodór lék með meistaraflokki Skallagríms á árunum 2015, 2016 og 2020 sem og á síðasta tímabili. Hann hefur einnig starfað með Lárusi hjá Fram. Þeir Lárus og Birgir hefja störf 1. mars næstkomandi samkvæmt FB síðu Skallagríms.