Hættir í forystu VG

Guðmundur Ingi Guðbrandsson varaformaður VG hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til forystu hjá Vinstri grænum á landsfundi flokksins í mars. Hann rifjar upp aðkomu sína að stjórnmálum í færslu á Facebook og tilgreinir helstu verkefni í ráðuneytum umhverfis- og félagsmála.