Frá vettvangi bruna í Borgarhrepp á síðasta ári. Ljósm. mm

Forgangsakstur slökkviliða algengari á landsbyggðinni

Verkefni slökkviliða landsins á síðasta ári voru 2.542 í heildina. Þar eru talin bæði lögbundin verkefni og önnur verkefni sem slökkviliðin taka að sér. Þetta kemur fram í tölfræði úr útkallskýrslugrunni slökkviliða sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur unnið fyrir 2025.