
Sigur að hluta í Hvalsmálinu
Héraðsdómur Vesturlands kvað í síðustu viku upp dóm í svokölluðu Hvalsmáli, en það var Verkalýðsfélag Akraness sem höfðaði málið fyrir hönd félagsmanna sinna. Málið snýr að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur þáverandi matvælaráðherra sumarið 2023 um að flauta af með engum fyrirvara hvalveiðivertíð sem þá var að hefjast þrátt fyrir að starfsmenn væru þegar mættir til vinnu og búnir að ráða sig á vertíðina. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að Hvali hf. bæri að greiða tveimur fyrrverandi starfsmönnum rúmar 2,1 milljónir króna hvorum í vangoldin laun vegna hvalveiðivertíðarinnar 2023. Fyrirtækið var hins vegar sýknað af kröfum tveggja annarra starfsmanna sem voru að hefja sína fyrstu vertíð hjá fyrirtækinu. Starfsmennirnir höfðu allir samþykkt að starfa við veiðarnar sem áttu að hefjast í lok sumars 2023. Deilt var um hvort bindandi ráðningarsamningur hefði komist á og hvort starfsmenn ættu rétt á launum þrátt fyrir að veiðarnar færu ekki fram.