Fréttir

true

Stjórnvaldsákvarðanir og sektir vegna dýravelferðar

Í tilkynningu frá Matvælastofnun er farið yfir stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar í dýravelferðarmálum og fleiru í mánuðunum nóvember 2025 til og með janúar 2026. Alls komu ellefu mál til kasta stofnunarinnar og eru þau tíunduð hér: „Vörslusvipting á ketti Ill meðferð á ketti sem stefndi lífi hans í hættu. Ákveðið var að fjarlægja köttinn af heimilinu. Dagsektir…Lesa meira

true

Skrásetningargjald í HÍ hækkað um þriðjung

Háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt að gera breytingar á gjaldskrá skólans sem felur í sér hækkun á skrásetningargjaldi fyrir skólaárið 2026-2027 um þriðjung. Fer það úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Hækkunin tekur þegar gildi. Alþingi samþykkti skömmu fyrir áramót breytingu á lögum um opinbera háskóla sem veitti þeim heimild til að hækka þak skrásetningargjalds…Lesa meira

true

Oddi gaf björgunarsveitinni Blakki húsnæði

Útgerðarfélagið Oddi á Patreksfirði hefur um árabil átt hluta þess húsnæðis sem einnig hýsir Björgunarsveitina Blakk á staðnum. Nú brá svo við í vikunni að Skjöldur Pálmason framkvæmdastjóri Odda afhenti björgunarsveitinni 300 fermetra húsnæði að gjöf en það er sambyggt núverandi húsnæði sveitarinnar. „Ljóst er að þessi höfðinglega gjöf breytir aðstöðu sveitarinnar mjög til hins…Lesa meira

true

Alþjóðlegt árangursmat tekið upp eftir rúmlega 30 ára hlé

Ísland tekur þátt í TIMSS 2027 – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Með þátttökunni verður mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði fjölgað, en til langs tíma hefur PISA-rannsóknin verið eini slíki mælikvarðinn. TIMSS-rannsóknin (Trends in International Mathematics…Lesa meira

true

Kínverjar selja sig út úr Elkem

Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðjuna á Grundartanga. Vísir.is greinir frá. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og engir peningar fara á milli aðila í þessum viðskiptum. Tekið er fram að…Lesa meira

true

Skagamenn sýndu klærnar en dugði þó ekki til

Íslandsmeistarar Vals í körfu tóku í gær á móti ÍA í sautjándu umferð Bónusdeildar karla. Fyrirfram var búist við öruggum sigri heimamanna, þar sem Skagamenn hafa átt undir högg að sækja og sitja á botni deildarinnar. Leikurinn reyndist hins vegar hin mesta skemmtun, sérstaklega í fyrri hálfleik. Að lokum sýndi Valur hins vegar hvers vegna…Lesa meira

true

Fjárveiting skert til barnaverndarmála

„Það eru vonbrigði að framlag ríkisins á árinu 2025 stefnir í að verða mun lægra en ráð var fyrir gert vegna verkefna tengdum barnavernd og því stefnir í að Dalabyggð þurfi að ganga á fyrirliggjandi lánsheimild í fjárhagsáætlun ársins 2026.“ Þetta kom fram í skýrslu Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra Dalabyggðar á fundi sveitarstjórnar í gær. Tekur…Lesa meira

true

Silfurmerki til sjálboðaliða innan sundhreyfingarinnar

Sundsamband Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sambandsins í gær í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum. SSÍ fagnaði með samstarfsaðilum sundhreyfingarinnar í gegnum árin og var margt um manninn og mikil gleði við völd. Sambandið hefur í 75 ár unnið að uppbyggingu sundíþróttarinnar á Íslandi og var afmælið því kjörið tækifæri til að hittast, rifja upp…Lesa meira

true

Framhaldsskólahermir í FSN

Þriðjudaginn 10. febrúar var svokallaður Framhaldsskólahermir haldinn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þá var nemendum í 10. bekk á Snæfellsnesi boðið í skólann þar sem þeir gátu kynnt sér námsleiðir og starfsemi skólans. Einnig var Nemendafélag FSN með kynningu á starfsemi félagsins. Nemendur vörðu deginum í FSN og sóttu tíma og hittu kennara og nemendur skólans. Þeir…Lesa meira

true

Setja vind- og veðurviðmið

Til að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða sinna á Akranesi, Grundartanga og í Reykjavík hafa Faxaflóhafnir sett takmarkanir á umferð skipa vegna veður- og vindskilyrða. Þetta kemur fram á heimasíðu Faxaflóahafna. Takmarkanir þessar eru þær fyrstu sem gefnar eru út opinberlega af höfn á Íslandi og byggjast á ítarlegri greiningu…Lesa meira