Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og Kolbrún Þ. Pálsdóttir forseti Menntavísindasviðs HÍ undirrituðu samning um undirbúning og framkvæmd TIMSS-rannsóknarinnar á Íslandi. Ljósm. Stjórnarráðið

Alþjóðlegt árangursmat tekið upp eftir rúmlega 30 ára hlé

Ísland tekur þátt í TIMSS 2027 – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Með þátttökunni verður mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði fjölgað, en til langs tíma hefur PISA-rannsóknin verið eini slíki mælikvarðinn.