
Húsnæði Blakks. Gjöfin er bilið hægra megin við núverandi bil sem sveitin á, næsta stóra hurð og að mæni hússins. Ljósm. aðsend
Oddi gaf björgunarsveitinni Blakki húsnæði
Útgerðarfélagið Oddi á Patreksfirði hefur um árabil átt hluta þess húsnæðis sem einnig hýsir Björgunarsveitina Blakk á staðnum. Nú brá svo við í vikunni að Skjöldur Pálmason framkvæmdastjóri Odda afhenti björgunarsveitinni 300 fermetra húsnæði að gjöf en það er sambyggt núverandi húsnæði sveitarinnar. „Ljóst er að þessi höfðinglega gjöf breytir aðstöðu sveitarinnar mjög til hins betra, enda hefur starf sveitarinnar verið í miklum blóma og þörf á stærra húsnæði,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.