Kínverjar selja sig út úr Elkem

Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðjuna á Grundartanga. Vísir.is greinir frá. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og engir peningar fara á milli aðila í þessum viðskiptum. Tekið er fram að breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga. Bluestar er fyrir viðskiptin meirihlutaeigandi Elkem með 52,9% eignarhlut. Aðrir eigendur eru að mestu norskir lífeyris- og fjárfestingarsjóðir, sem fara með miklum mun minni eignarhluti en kínverska félagið. Þannig er Folketrygdfondet, fjárfestingarsjóður almannatrygginga Noregs, næststærsti hluthafinn með 3,65% hlut.