Fréttir

true

Varmadælur verða settar í Ólafsvíkurkirkju

Ákveðið hefur verið að setja upp tvær varmadælur til að kynda upp Ólafsvíkurkirkju. Í bæjarblaðinu Jökli er sagt frá þessu, en sóknarnefnd óskar þar eftir stuðningi svo fjármagna megi framkvæmdina. „Núverandi rafmagnsofnar eru orðnir gamlir, orkufrekir og hafa leitt til verulegrar hækkunar á rafmagnskostnaði. Því miður er afgangur af rekstri kirkjunnar ekki nægur til að…Lesa meira

true

SSV lýsir andstöðu við hugmyndir um gjaldtöku í gömlu göngin

Nýverið sendu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi inn ítarlega umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna Samgönguáætlunar. Ríkisstjórnin hefur meðal annars kynnt hugmynd sína um stofnun innviðafélags sem hefði þann tilgang að koma á nýju skipulagi fjármögnunar við framkvæmd stórra samgöngumannvirkja. SSV mótmælir því að hefja að nýju gjaldtöku í Hvalfjarðargöng: „Stjórn SSV lýsir yfir andstöðu…Lesa meira

true

Nýtt sveitabakarí á Snæfellsnesi

Björtubrauð er gómsæt nýsköpun í atvinnuflóru Snæfellinga Athafnakonan Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir býr í Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík ásamt manni sínum Guðjóni Jóhannessyni. Hún hefur nú stofnað bakaríið Björtubrauð og sérhæfir sig í að baka úr súrdeigi. „Það er ekki nema ár síðan að hugmyndin kviknaði,“ segir Guðný í samtali við Skessuhorn. „Ég hafði verið að horfa…Lesa meira

true

Umferð í íþróttamannvirkin hefur fimmfaldast

Miklar breytingar til hins betra urðu í haust á íþróttaaðstöðu við Jaðarsbakka á Akranesi. Opnað var nýtt íþróttahús, AvAir höllin, með stórum sal og fjölbreyttri íþrótta- og æfingaaðstöðu og rúmgóðum áhorfendapöllum. Á sama tíma var líkamsræktarstöð World Class opnuð í gamla íþróttahúsinu eftir gagngerar endurbætur á húsnæðinu. Viðtökur almennings við aukinni þjónustu hafa verið góðar…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn í Snæfellsbæ samþykktu uppstillingu

Á aðalfundi Sjálfstæðisfélaganna í Snæfellsbæ, sem haldinn var í 5. febrúar síðastliðinn, var samþykkt tillaga um fyrirkomulag við röðun á D lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Í bæjarblaðinu Jökli kemur fram að samþykkt var að uppstilling verði á listann. Í uppstillingarnefnd eru Björn Arnaldsson, Kristjana Hermannsdóttir og Rögnvaldur Ólafsson. Fram kom á fundinum að bæjarfulltrúarnir…Lesa meira

true

Hugað að umhverfinu

Síðastliðinn mánudag sáust dugleg ungmenni á ferð við Sjúkrahúsið á Akranesi þar sem þau voru að tína rusl. Um náttúrufræðiverkefni var að ræða hjá 5. BS í Brekkubæjarskóla, þar sem verið er að huga að umhverfisvernd. Skessuhorn heyrði í Ingibjörgu Huld Gísladóttur kennara hópsins sem sagði að áður en farið hafði verið af stað var…Lesa meira

true

Sótt um að byggja myndarlegt fuglaskoðunarhús á Jónsnesi

Sótt hefur verið um leyfi til Sveitarfélagsins Stykkishólms til að byggja ríflega 200 fermetra hús á eyðibýlinu Jónsnesi í Helgafellssveit. Jörðin er 143 hektarar að stærð og var seld fyrir nokkru til fyrirtækisins Jónsness ehf sem hefur nú endurnýjað áður innsenda umsókn sína um að reisa þar byggingu sem er kölluð fuglaskoðunarhús. Um er að…Lesa meira

true

Mótmæla harðlega að veggjöld verði tekin upp að nýju

Akraneskaupstaður, ásamt sex öðrum umsagnaraðilum, hefur nú sent inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna frumvarps um innviðafélag í samgönguframkvæmdum. Megin tilgangur félagsins er að byggja samgöngumannvirki, sem heimilað verður að innheimta veggjöld til að greiða niður fjárfestingu og rekstur viðkomandi mannvirkis. Einnig verður heimilt að byggja samgöngumannvirki sem að hluta til verði fjármagnar með framlögum…Lesa meira

true

Endurbyggja í sumar sex kílómetra kafla Snæfellsnesvegar

Borgarbyggð hefur fyrir sitt leyti samþykkt umsókn Vegagerðarinnar sem óskaði framkvæmdaleyfis vegna breikkunar, styrkingar og endurbyggingar Snæfellsnesvegar (54) milli Brúarhrauns og Hraunsmúla. Ástand þessa kafla vegarins hefur verið mjög bágborið undanfarin ár og þar hafa orðið alvarleg slys. Að jafnaði aka 2.450 bílar um veginn á sólarhring að sumri, en vetrarumferð er um þúsund bílar.…Lesa meira

true

Festa í sessi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán

Drög að frumvarpi um skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána hafa verið sett í samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána, sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota, verði gerð varanleg. Gert er ráð fyrir því að heimildin öðlist…Lesa meira