
Eftir góðar fréttir af stórauknum loðnukvóta í vikunni tóku hjörtu Skagamanna óneitanlega kipp þegar nótaskip Brims, Venus NS-150, sigldi drekkhlaðinn inn til Akraneshafnar í vetrarblíðunni í morgun. Ekki var það þó aflinn loðna að þessu sinni heldur fullfermi af kolmunna sem fer til bræðslu í verksmiðju Brims á Akranesi.Lesa meira








