Fréttir

true

Rósa Marinósdóttir er meðal orðuhafa

Forseti Íslands sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Meðal þeirra er Rósa Marinósdóttir hjúkrunarfræðingur á Hvanneyri sem jafnframt er ötul baráttukona fyrir íþróttir almennings. Orður hljóta að þessu sinni í stafrófsröð: 1. Anna Júlíana Sveinsdóttir, söngkona og söngkennari, fyrir framlag til klassískrar tónlistarmenntunar. 2. Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi…Lesa meira

true

Lína langsokkur verðlaunuð fyrir besta búninginn

Hlaupahópur Snæfellsbæjar stóð í dag fyrir nýárshlaupi; Ironman. Lína langsokkur, Svarthöfði, Kóngulóarmaðurinn, Elsa úr Frozen og tvær klappstýrur mættu til leiks. Lína langsokkur fékk sigurverðlaun fyrir besta búninginn og leikræna tilburði meðan á hlaupi stóð og hlaut farandbikar að launum. Jökullinn skartaði sínu fegursta og bauð íbúum Snæfellsbæjar gleðilegt nýtt ár. Tvær myndir – eina…Lesa meira

true

Vesturlandsmótið í sveitakeppni verður spilað í golfskálanum á Akranesi

Laugardaginn 3. janúar verður Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds spilað á Akranesi. Hefð er fyrir því að mótið sé spilað á Akranesi í upphafi árs en það er Bridgesamband Vesturlands sem stendur að því undir forystu Sveinbjarnar Eyjólfssonar formanns. Þátttaka á mótið er afar góð, en von er á tuttugu sveitum til leiks. Tæpur helmingur…Lesa meira

true

Eldsneytisverð tók dýfu í gærkveldi – áfram ódýrast að tanka í Borgarnesi

Í kjölfar þess að Alþingi samþykkti fyrir jól ný lög um að taka upp kílómetragjald fyrir akstur bíla og annarra ökutækja nú um áramótin vakti eftirvæntingu hvort og þá með hvaða hætti olíufélögin skiluðu niðurfellingu eldsneytisgjalda og vörugjalda af bensíni ásamt olíugjaldi út í verðlagið. Í fyrstu atrennu virðast olíufélögin hafa staðist prófið, en FÍB,…Lesa meira

true

Gleðilegt ár!

Starfsfólk Skessuhorns – fréttaveitu Vesturlands, þakkar lesendum sínum og öðrum viðskiptavinum fyrir samskiptin á árinu 2025. Megi nýtt ár færa öllum gleði og hamingju.Lesa meira

true

Langstærsti söludagur flugelda runninn upp

Landsmenn geta glaðst því í kvöld spáir stilltu og fallegu veðri og því verða kjöraðstæður til að kveðja árið með flugeldum að loknu Skaupinu. Sala flugelda er einn af stærstu þáttum björgunarsveita landsins í fjáröflun fyrir starfsemi sína. Landsmenn vita það og eru því fúsir til að kaupa af björgunarsveitunum og styðja um leið lífsnauðsynlega…Lesa meira

true

Knattspyrnusystur buðu snæfellskum stúlkum á æfingu

Það var fríður hópur snæfellskra stúlkna sem mætti í íþróttahúsið í Ólafsvík í gær á knattspyrnuæfingu sem systurnar Erika Rún og Sædís Heiðarsdætur stóðu fyrir. Þær hafa báðar náð langt í íþróttinni, en byrjuðu báðar feril sinn með Víkingi Ólafsvík. Eftir það lá leið þeirra systra á stærri mið. Erika fór frá Víkingi til Aftureldingar…Lesa meira

true

Greiðslukerfi strætóleiðanna hætta að tala saman um áramót

Eftir áramótin verður ekki hægt að nýta fargjöld milli greiðslukerfis Strætós á höfuðborgarsvæðinu og greiðslukerfis Vegagerðarinnar, sem rekur landsbyggðarstrætó. Þetta þýðir að fargjald sem greitt er í öðru kerfinu nýtist ekki upp í greiðslu í hinu eins og verið hefur fram að þessu. Þetta kemur fram í frétt Vegagerðarinnar. Strætó bs. sér um almenningssamgöngur á…Lesa meira

true

Glóð getur lengi leynst í flugeldarusli

Ástæða er til að benda fólki á að glóð getur lengi leynst í flugeldarusli eftir að þeir hafa verið sprengdir. Til marks um það er rétt að benda á að á fyrsta sólarhring þessa árs kom upp eldur í að minnsta kosti þremur ruslagámum á Vesturlandi; í Borgarnesi, Ólafsvík og Grundarfirði. Í einhverjum tilfellum þótt…Lesa meira