Svipmynd frá mótinu á síðasta ári. Ljósm. mm

Vesturlandsmótið í sveitakeppni verður spilað í golfskálanum á Akranesi

Laugardaginn 3. janúar verður Vesturlandsmótið í sveitakeppni í bridds spilað á Akranesi. Hefð er fyrir því að mótið sé spilað á Akranesi í upphafi árs en það er Bridgesamband Vesturlands sem stendur að því undir forystu Sveinbjarnar Eyjólfssonar formanns. Þátttaka á mótið er afar góð, en von er á tuttugu sveitum til leiks. Tæpur helmingur þátttakenda kemur af Vesturlandi og af Ströndum en rúmur helmingur af höfuðborgarsvæðinu.

Til stóð að mótið yrði haldið á Dalbraut 4, líkt og undanfarin ár, en finna þurfti aðra staðsetningu þar sem tvíbókað hafði verið á Dalbrautinni. Ný staðsetning er ekki síðri. Mótið verður spilað í frístundamiðstöðinni Garðavöllum, nýlegri og glæsilegri frísundamiðstöð og veitingastað við golfvöll Leynis á Akranesi. Mótið hefst stundvíslega klukkan 10 og eru þátttakendur beðnir um að kynna sér staðsetningu til að finna mótsstað og vera mættir tímanlega.

Vesturlandsmótið í sveitakeppni verður spilað í golfskálanum á Akranesi - Skessuhorn