
Landsbjörg innkallar Rakettupakka 2 – hægt í dag að skipta út fyrir aðra vöru
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í gær ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í „Rakettupakka 2,“ sem inniheldur fjórar rakettur. Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma. „Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir. Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru. Hægt verður að skipta út pakkanum í dag þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann,“ segir í tilkynningu.
„Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.“