Um kl. 17:30 var hópslysaáætlun virkjuð vegna rútuslyss við austanverðan Seljafjörð á Snæfellsnesi. Samkvæmt tilkynningu fór rúta með 44 farþegum útaf þjóðveginum og var útkall björgunarsveita á stóru svæði í hæsta forgangi. Einnig hefur þyrla Landhelgisgæslunnar verið kölluð út. Uppfært kl. 18:26 Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns hefur útkallssvæðið nú verið minnkað sem bendir til þess að…Lesa meira
Fréttir

Grundarfjarðarhöfn verður af tæplega 100 milljón króna tekjum á þremur árum vegna afbókana skemmtiferðaskipa í kjölfar álagningar 2.500 króna innviðagjalds og afnám tollfrelsis í hringsiglingum slíkra skipa milli hafna á Íslandi. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Grundarfjarðarhöfn sendi Alþingi vegna breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga árins 2026. Í minnisblaðinu kemur fram að tveir…Lesa meira

Um helgina, 10.-12. október, fer fram strengjamót á Akranesi, þar sem hljóðfæraleikarar á strengjahljóðfæri koma saman. Þar koma saman 320 nemendur af öllu landinu og æfa í fimm mismunandi sveitum. Þau munu svo ljúka helginni með tónleikum á sunnudeginum kl. 14:00. „Strengjamót hefur verið haldið annað hvert ár undinfarin 30 ár. Það er mikil vítaminsprauta…Lesa meira

Guðrún Hafsteinsdóttir, ásamt þremur öðrum þingmönnum, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um erfðafjárskatt. Meginefni lagabreytinganna felast í því að erfðafjárskattur leggist ekki á jarðir sem notaðar eru undir landbúnaðarrekstur líkt og slíkur rekstur er skilgreindur samkvæmt búnaðarlögum. Þau skilyrði eru þó sett samkvæmt breytingatillögunni að landbúnaðarrekstur hafi verið…Lesa meira

Þessa skemmtilegu mynd tók María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir sóknarprestur í Reykholti í gærkveldi út um stofugluggann á prestssetrinu. Þarna færir fullt tún fallega birtu á gamla skólahúsið sem sömuleiðis er lýst upp með kösturum úr Snorragarði í tilefni af bleikum október.Lesa meira

Dregið var í 32 liða úrslit VÍS bikars karla í Laugardalnum í dag. Dregið verður í 16 liða úrslit karla og kvenna mánudaginn 3. nóvember. Eins og kom fram í bikardrættinum þá fer leikur Hattar og Tindastóls fram 26.-27. október vegna þátttöku Tindastóls í ENBL deildinni. Alls voru 26 lið skráð til leiks og því…Lesa meira

Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem unninn var fyrir Ríkisútvarpið, var fylgi stjórnmálaflokka brotið niður eftir kjördæmum. Í Norðvesturkjördæmi eru sex kjördæmakjörnir þingmenn. Nokkrar breytingar hafa orðið á fylgi flokka frá síðasta þjóðarpúlsi og enn meiri ef miðað er við fylgi þeirra í kosningunum í lok nóvember. Samfylking og Miðflokkur bæta við sig fylgi. Samfylking er…Lesa meira

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytingu á lögum um áhafnir skipa. Frumvarpið, verði það að lögum, gerir ráðherra kleift að setja í reglugerð nánari ákvæði um menntun og þjálfun á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Slysavarnarskóla sjómanna til skipstjórnar og vélgæslu á björgunarskipum. Námskrá og listi yfir kennara eru háð samþykki…Lesa meira

Kvenfélag Stafholtstungna í Borgarfirði tók um helgina þátt í verkefni Kvenfélagasambands Íslands sem nefnist Vika einmanaleikans. Er um að ræða vitundarvakningu um einsemd og einmanaleika og stendur yfir 3.-10. október. Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu…Lesa meira

Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona úr Borgarfirði, sem keppir fyrir ÍA, varð um helgina Íslandsmeistari í klassískum lyftingum. Kristín gjörsigraði í 84 kílóa flokknum með því að lyfta samanlagt 570,5 kílóum. Jafnfram náði hún besta árangri á mótinu, fékk 107,9 stig en engin önnur kona komst yfir 86 stigin. Kristín var með þátttöku á mótinu að stimpla…Lesa meira