Fréttir

true

Skallagrímur semur við nýjan leikmann

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur samið við nýjan bandarískan leikmann. Deildin sagði upp samningi við Walter Kelser en hann meiddist fljótlega eftir komu sína til liðsins. Nýi leikmaðurinn heitir Ishmael Sanders og samkvæmt fréttatilkynningu frá deildinni kemur hann með mikla reynslu inn í lið Skallagríms. Sanders leikur í stöðu leikstjórnanda. Hann spilaði í San Diego…Lesa meira

true

Starfstengd námslína verður tekin upp í FVA eftir áramót

Verkefni sem krefst samvinnu allra í nærsamfélaginu Um næstu áramót mun Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi opna fyrir nýja námslínu innan framhaldsskólabrautar sem nefnist Starfstengd námslína. Til skýringar er framhaldsskólabraut ætlað að búa nemendur sem ekki hafa náð tilskildum árangri á grunnskólaprófi undir nám á bók- eða verknámsbrautum skólans. Starfstengdri námslínu er ætlað að grípa þá…Lesa meira

true

„Þörfin fyrir fjölda liðskiptaaðgerða verður áfram mikil“

Ítarlega rætt við Halldór Bergvinsson bæklunarskurðlækni á HVE á Akranesi Valkvæðar liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám hér á landi voru samtals 2.138 árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri. Ríflega 16% þeirra voru framkvæmdar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi en alls eru framkvæmdar liðskiptaaðgerðir á fimm stöðum hér á landi; Handlæknastöðinni, HVE Akranesi, Klínikinni, Landspítala…Lesa meira

true

Ráðleggja ökumönnum að lækka hraðann á ónýtum vegum

Vegagerðin hefur sett upp leiðbeinandi skilti með allavega viðvörunum og stórum skiltum þar sem ökumenn eru hvattir til að keyra á 70 kílómetra leiðbeinandi hámarkshraða á veginn um Snæfellsnes, þar sem hámarkshraði hefur fram til þessa verið 90 km/klst. Bæði er um að ræða 20 km vegarkafla frá Hítará vestur að Núpá en hins vegar…Lesa meira

true

Minnast 350 ára ártíðar Hallgríms Péturssonar

Vegleg dagskrá í Saurbæ og Vatnaskógi sunnudaginn 27. október Dánardagur Hallgríms Péturssonar var 27. október. Um langt árabil hefur hann verið haldinn hátíðlegur sem Ártíðardagur Hallgríms Péturssonar. Stuðst er við ártíðardag í ljósi þess að fæðingardagur Hallgríms er ekki kunnur. Í Hallgrímskirkju í Saurbæ hefur jafnan verið messa næsta sunnudag á eftir, ef dagurinn er…Lesa meira

true

Kosið verður til Alþingis laugardaginn 30. nóvember

Halla Tómasdóttir forseti Íslands var rétt í þessu að ljúka fundi með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Bessastöðum. Í framhaldinu flutti hún ávarp, en neitaði að svara spurningum fréttamanna að því loknu í ljósi þess að nú er formlega hafin kosningabarátta til Alþingis. Sagði Halla að í ljósi stöðunnar væri heillavænlegast fyrir þing og þjóð að…Lesa meira

true

Leikfélagið Lauga færir Ævintýrabókina á svið

Leikfélagið Lauga er áhugamanna leikfélag sem er starfsrækt í Snæfellsbæ. Nú á dögunum hófust æfingar hjá félaginu þar sem verið er að setja upp leikverk sem ber nafnið Ævintýrabókin. Það er eftir Pétur Eggerz og er í leikstjórn Alexander Stutz. Ævintýrabókin fjallar um úlfinn í Rauðhettu þar sem hann strýkur úr ævintýrinu og fer yfir…Lesa meira

true

Grundfirðingar leggja land undir fót

Í ár eru 20 ár síðan Grundarfjörður og Paimpol í Frakklandi tóku upp formlegt vinabæjarsamband. Í gegnum tíðina hafa bæjarbúar og bæjarstjórnir haft gagnkvæmar heimsóknir. Í tilefni af afmælinu ætlar Grundapol félagið í Paimpol að halda hátíðardagskrá dagana 17.-21. október. Af því tilefni er hópur frá Grundarfirði sem telur 38 manns á leið til Frakklands,…Lesa meira

true

Kennarafélag FVA sendir frá sér ályktun vegna kjaradeilu framhaldsskólakennara

Félag framhaldsskólakennara hefur með reglulegum hætti sent félagsfólki sínu og skólameisturum tölfræði um launaþróun í framhaldsskólum. Samkvæmt nýjustu tölum sem miðast við fyrri hluta árs 2024 þá er ljóst nýr stofnanasamningur er að skila ætluðum árangri í þróun dagvinnulauna og er Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi nú meðal sex efstu skólanna, af þeim 27 skólum sem…Lesa meira

true

Þrjátíu bílar fluttu steypu í brúargólfið í Kollafirði

Síðastliðinn laugardag var brúardekkið steypt við Eyri í Kollafirði í Reykhólasveit. Brúargerðin er á vegum Vestfirskra verktaka og vinnur fyrirtækið að tveimur brúm sitt hvorum megin við Klettshálsinn, hin er yfir í Skálmardal. Eins og jafnan þegar brýr eru steyptar er kappkostað að hafa samfellu í verkinu þannig að engin steypuskil myndist. Brúargólfið er 80…Lesa meira