Frá Tæknimessu í FVA. Ljósm. vaks

Kennarafélag FVA sendir frá sér ályktun vegna kjaradeilu framhaldsskólakennara

Félag framhaldsskólakennara hefur með reglulegum hætti sent félagsfólki sínu og skólameisturum tölfræði um launaþróun í framhaldsskólum. Samkvæmt nýjustu tölum sem miðast við fyrri hluta árs 2024 þá er ljóst nýr stofnanasamningur er að skila ætluðum árangri í þróun dagvinnulauna og er Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi nú meðal sex efstu skólanna, af þeim 27 skólum sem samantektin nær til, þegar horft er til meðaltalsdagvinnulauna. Þetta kemur fram í Skruddunni, fréttabréfi FVA, sem birtist í dag.

Kennarafélag FVA sendir frá sér ályktun vegna kjaradeilu framhaldsskólakennara - Skessuhorn