
Kosið verður til Alþingis laugardaginn 30. nóvember
Halla Tómasdóttir forseti Íslands var rétt í þessu að ljúka fundi með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Bessastöðum. Í framhaldinu flutti hún ávarp, en neitaði að svara spurningum fréttamanna að því loknu í ljósi þess að nú er formlega hafin kosningabarátta til Alþingis. Sagði Halla að í ljósi stöðunnar væri heillavænlegast fyrir þing og þjóð að gengið verði til kosninga. Þing verður því rofið. Skal boða til kosninga innan 45 daga frá þingrofi sem verður á fimmtudaginn. Fara kosningar fram laugardaginn 30. nóvember nk.
Við tekur starfsstjórn til bráðabirgða. Þingmenn halda umboði sínu til kjördags og geta því lokið nauðsynlegustu málum. „Vöndum okkur í samtalinu sem framundan er. Virkt lýðræði krefst skoðanaskipta. Virðing, mennska og heiðarleika þarf þar að vera að leiðarljósi,“ sagði Halla Tómasdóttir forseti Íslands.