
Grundfirðingar leggja land undir fót
Í ár eru 20 ár síðan Grundarfjörður og Paimpol í Frakklandi tóku upp formlegt vinabæjarsamband. Í gegnum tíðina hafa bæjarbúar og bæjarstjórnir haft gagnkvæmar heimsóknir. Í tilefni af afmælinu ætlar Grundapol félagið í Paimpol að halda hátíðardagskrá dagana 17.-21. október. Af því tilefni er hópur frá Grundarfirði sem telur 38 manns á leið til Frakklands, flýtur utan í fyrramálið. Flogið er til Parísar þar sem rúta flytur hópinn á Bretaníuskagann og til bæjarins Paimpol. Hluti af bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar er með í för og svo margir áhugasamir Grundfirðingar sem hyggja á að rækta vinatengsl við Paimpolbúa. Meðfylgjandi mynd er frá ráðhúsi Paimpol þar sem ljósmyndir frá báðum bæjum hanga við hliðið.