Fréttir

true

Andlát – Ólöf Guðbrandsdóttir í Nýjabæ

Ólöf Kolbrún Guðbrandsdóttir, best þekkt sem Olla í Nýjabæ, lést í gær á Sjúkrahúsinu á Akranesi eftir stutt en snörp veikindi. Hún var á 90. aldursári. Olla var einkabarn foreldra sinna, Kristínar Sveinbjarnardóttur og Guðbrands Júlíussonar, sem hófu búskap í Nýjabæ þegar Olla var ársgömul en hún var fædd í Bæ í Bæjarsveit. Faðir Ollu…Lesa meira

true

Daniel Ingi fær nýjan samning

Skagamaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson hefur skrifað undir nýjan samning við danska knattspyrnuliðið Nordsjælland. Þessi 17 ára gamli miðjumaður gekk til liðs við Nordsjælland frá ÍA síðasta sumar. Hann hefur staðið sig við með U19 liði félagsins en liðið varð bikarmeistari í sumar. „Ég er ánægður að hafa framlengt samning minn við Nordsjælland. Ég vona að…Lesa meira

true

Framkvæmdum að ljúka á Klofningsvegi

Frá gatnamótum Vestfjarðavegar og Klofningsvegar og að bænum Kýrunnarstöðum á Fellsströnd í Dölum hafa vegasamgöngur batnað að undanförnu. Búið er að leggja slitlag á þann kafla leiðarinnar. 8,3 km kafli er nú að mestu frágenginn en eftir er að setja stikur meðfram vegi og merkingar. Eftir stendur nú 36 km vegarkafli að Klofningi auk 14,5…Lesa meira

true

Þóra skipuð í embætti yfirdýralæknis

Matvælaráðherra hefur skipað Þóru Jóhönnu Jónasdóttur í embætti yfirdýralæknis. Þóra lauk doktorsprófi árið 2002 frá Dýralæknaháskólanum í Noregi (Norges Veterinærhøgskole, NVH) og embættisprófi í dýralækningum árið 1990 frá sama skóla. Þóra stundar meistaranám í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, hefur lokið leiðsögunámi og námi í sjúkraflutningum. Þóra hefur starfað hjá Matvælastofnun sem sérgreinadýralæknir frá árinu…Lesa meira

true

Sýningin Aftur og aftur en aldrei eins opnuð í Stykkishólmi

Síðastliðinn laugardag var opnuð í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla sýningin „Aftur og aftur en aldrei eins.“ Þar sýnir Sigríður Melrós prentverk með tækni dúkristu. Í tilefni opnunarinnar las ljóðskáldið Margrét Lóa Jónsdóttir ljóð en 12. ljóðabók hennar er væntanleg í þessum mánuði. Sigríður Melrós hefur unnið við myndlist frá því hún lauk námi í Myndlista-…Lesa meira

true

Myndamorgnar hefjast á ný í Borgarnesi

Myndamorgnar á föstudögum í Safnahúsinu í Borgarnesi eru á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar. Þar eru gestir beðnir um að aðstoða við greiningu á ljósmyndum úr eigu safnsins. Myndirnar sem sýndar voru á föstudaginn voru frá Stangveiðifélagi Borgarness og Friðriki Þórðarsyni. Næsti myndamorgun er föstudaginn 18. október klukkan 10.00.Lesa meira

true

Undirbúningur Útvarps Akraness hafinn

Útvarp Akraness er órjúfanlegur hluti jólaundirbúnings Skagamanna og hefur verið árum saman. Undirbúningur útvarpsins í ár er hafinn og verður útvarpað samkvæmt venju fyrstu helgina í aðventu sem í ár er 29. nóvember – 1. desember. „Dagskráin er í smíðum og ljóst að hún verður fjölbreytt að vanda, bæði fræðandi og skemmtileg. Útvarpsnefndin er ávallt…Lesa meira

true

Ungmennaráð Borgarbyggðar fór til Litháen

Dagana 27. – 28. september sl. fór fram ráðstefnan Nordic Baltic Youth Summit í Vilníus í Litháen. Ráðstefnan var haldin af Norrænu ráðherranefndinni í samstarfi við LiJOT, Ungmennaráð Litháens og LSU, Landsráð sænskra barna- og ungmennasamtaka. Markmið ráðstefnunnar var að styrkja tengsl og efla til samstarfs milli ungmenna á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum. Fram kemur…Lesa meira

true

Komdu í bingó vinan

Valgerður Helga Ísleifsdóttir bauð upp á alvöru bingó veislu fyrir konur á Snæfellsnesi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar laugardagskvöldið 5. október. Hún er að halda þennan viðburð annað árið í röð en í fyrra tóks kvöldið framar vonum. Ekki voru viðtökurnar síðri í ár en uppselt var í bingóið og öll sæti seld. Allur ágóði af kvöldinu…Lesa meira

true

Tímamótadagur í Búðardal þegar byggingarkrani var reistur

Föstudaginn 4. október var settur upp byggingarkrani í Búðardal en starfsmenn verktakafélagsins Eyktar ehf. hafa nú komið sér fyrir í Búðardal og hefja brátt byggingu íþróttamiðstöðvar á staðnum. Byggingarkranar af þessari stærð eru ekki algengir á þessum stað. Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar segir að útlit sé fyrir að jarðvegsvinna klárist nú á næstu dögum…Lesa meira