Svipmynd frá Útvarpi Akraness 2022. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

Undirbúningur Útvarps Akraness hafinn

Útvarp Akraness er órjúfanlegur hluti jólaundirbúnings Skagamanna og hefur verið árum saman. Undirbúningur útvarpsins í ár er hafinn og verður útvarpað samkvæmt venju fyrstu helgina í aðventu sem í ár er 29. nóvember - 1. desember. „Dagskráin er í smíðum og ljóst að hún verður fjölbreytt að vanda, bæði fræðandi og skemmtileg. Útvarpsnefndin er ávallt opin fyrir góðum hugmyndum að útvarpsþáttum og eflaust eru einhverjir sem eiga sér þann draum að sjá um einn slíkan. Ef þú ert með góða hugmynd hafðu þá endilega samband á netfangið utvarpakraness@gmail.com“ segir í tilkynningu frá nefndinni.

Undirbúningur Útvarps Akraness hafinn - Skessuhorn