
Andlát – Ólöf Guðbrandsdóttir í Nýjabæ
Ólöf Kolbrún Guðbrandsdóttir, best þekkt sem Olla í Nýjabæ, lést í gær á Sjúkrahúsinu á Akranesi eftir stutt en snörp veikindi. Hún var á 90. aldursári. Olla var einkabarn foreldra sinna, Kristínar Sveinbjarnardóttur og Guðbrands Júlíussonar, sem hófu búskap í Nýjabæ þegar Olla var ársgömul en hún var fædd í Bæ í Bæjarsveit. Faðir Ollu og bróðir hans keyptu jörðina Bæ ásamt afa hennar og jörðinni var svo skipt í Nýjabæ, Laugabæ og Bæ. Ung eignaðist Olla sína fyrstu hryssu og hóf ræktunarstarf hrossa sem hún var þekkt fyrir. „Ég var einbirni og óhemja. Þriggja ára var ég farin að fara á hestbak og fjögurra ára reið ég um allar sveitir,“ sagði Olla í viðtali sem birtist í Skessuhorni 2006. „Alla tíð frá því ég man fyrst eftir mér, kom ég að öllum þeim verkum sem þurfti að sinna á heimilinu hvort sem það voru þessi svonefndu kvenmanns- eða karlaverk. Ég hafði mikinn áhuga fyrir hestum og fékk að sinna þeim nokkurn veginn eins og mig langaði, þegar ekki hvíldu á mér skyldustörf við búskapinn,“ bætti hún við.
Í æsku var Olla í farskóla og svo við nám í Reykholti tvo vetur og á Laugarvatni í einn vetur auk eins vetrar á Húsmæðraskólanum á Blönduósi. Hún starfaði um tíma í Reykjavík og dans var áhugamál númer eitt. Eiginmaður Ollu var Reynir Guðmundsson. Hann lést úr krabbameini rétt fyrir fimmtugt, árið 1987. Þau eignuðust tvo syni, þá Guðbrand og Kristin. Eftir fráfall Reynis hélt Olla áfram búskap í Nýjabæ og stundaði hann fram á efri ár. Olla sinnti margvíslegum félagsstörfum. Sat m.a. í stjórn félags hrossabænda, hestamannafélagsins Faxa og í áratugi var hún formaður veiðifélags Flóku.
Olla í Nýjabæ var sannkölluð kjarnakona. Hún hlaut fjölmargar viðurkenningar og verðlaun fyrir hrossarækt sína og atorku í gegnum tíðina. Meðal annars hlaut hún Heiðursviðurkenningu Bændasamtakanna og Félags hrossabænda árið 2020. Þessi æðstu verðlaun samtakanna hlýtur jafnan eldri einstaklingur sem lagt hefur drjúgan skerf inn í ræktun íslenska hestsins á æviskeiði sínu. Þeirri viðurkenningu fylgdi þau orð að Olla væri fallegt dæmi um manneskju sem alist hafi upp við hestamennsku, stundað ræktunarstarf af alúð og uppskorið í samræmi við það.