
Listakonan Sigríður Melrós og ljóðskáldið Margrét Lóa ánægðar með daginn. Ljósm. Hjördís Pálsdóttir
Sýningin Aftur og aftur en aldrei eins opnuð í Stykkishólmi
Síðastliðinn laugardag var opnuð í Byggðasafni Snæfellinga og Hnappdæla sýningin „Aftur og aftur en aldrei eins.“ Þar sýnir Sigríður Melrós prentverk með tækni dúkristu. Í tilefni opnunarinnar las ljóðskáldið Margrét Lóa Jónsdóttir ljóð en 12. ljóðabók hennar er væntanleg í þessum mánuði.