
Brynja Dan rúllar kúlunum í gegn fyrir spennta gesti áður en það heyrist bingó úr sal. Ljósm. tfk
Komdu í bingó vinan
Valgerður Helga Ísleifsdóttir bauð upp á alvöru bingó veislu fyrir konur á Snæfellsnesi í Samkomuhúsi Grundarfjarðar laugardagskvöldið 5. október. Hún er að halda þennan viðburð annað árið í röð en í fyrra tóks kvöldið framar vonum. Ekki voru viðtökurnar síðri í ár en uppselt var í bingóið og öll sæti seld. Allur ágóði af kvöldinu rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Snæfellsness en þannig var einnig háttur á í fyrra. Boðið var upp á sætaferðir frá Snæfellsbæ og Stykkishólmi en það var fyrirtækið Rútuferðir sem bauð upp á þær.