Mynd tekin frá Fellsströnd en þarna sést glitta í bæinn Skerðingsstaði. Ljósm. hig

Framkvæmdum að ljúka á Klofningsvegi

Frá gatnamótum Vestfjarðavegar og Klofningsvegar og að bænum Kýrunnarstöðum á Fellsströnd í Dölum hafa vegasamgöngur batnað að undanförnu. Búið er að leggja slitlag á þann kafla leiðarinnar. 8,3 km kafli er nú að mestu frágenginn en eftir er að setja stikur meðfram vegi og merkingar. Eftir stendur nú 36 km vegarkafli að Klofningi auk 14,5 km leiðar efri byggðar á Fellsströnd.

Framkvæmdum að ljúka á Klofningsvegi - Skessuhorn