
Ein af myndum sem sýnd var síðastliðinn föstudag. Gerð brúar yfir Beilá í Langavatnsdal.
Myndamorgnar hefjast á ný í Borgarnesi
Myndamorgnar á föstudögum í Safnahúsinu í Borgarnesi eru á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar. Þar eru gestir beðnir um að aðstoða við greiningu á ljósmyndum úr eigu safnsins. Myndirnar sem sýndar voru á föstudaginn voru frá Stangveiðifélagi Borgarness og Friðriki Þórðarsyni. Næsti myndamorgun er föstudaginn 18. október klukkan 10.00.