Fréttir

true

Landsvirkjun boðar skerðingu orku til stórnotenda

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum á suðvesturhluta landsins að skerða þurfi orku til starfsemi þeirra. Skerðingarnar hefjast 24. október, að öllu óbreyttu. Eins og nýliðin ár er ástæðan sögð slæm staða miðlunarlóna á Þjórsársvæði. Þótt vætusamt hafi verið á láglendi í sumar var ekki sama uppi á teningnum á hálendinu. Þar var þurrt og jafnframt kalt,…Lesa meira

true

Arnar á fjalir Landnámsseturs

Fyrsta frumsýning vetrarins á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi verður laugardaginn 28. september. Þá mun Arnar Jónsson leikari stíga á stokk og flytja úrval ljóða sem snert hafa við honum í gegnum tíðina. „Arnar, sem er einn af okkar ástsælustu leikurum og heiðurslistamaður Grímunnar 2023, hefur um árabil getið sér gott orð fyrir sinn einstaka flutning…Lesa meira

true

Sökklar að nýju íþróttahúsi við Heiðarborg

Stærsta einstaka framkvæmd Hvalfjarðarsveitar um þessar mundir er bygging nýs íþróttahúss við Heiðarborg. Jarðvegsframkvæmdir hófust snemma í vor og sökklar komnir eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Talsverð steypuvinna við grunn er framundan. Áætluð verklok fyrsta áfanga verksins er 1. júlí á næsta ári, en þessi áfangi er í höndum verktakans K16 ehf. Vinnubúðir…Lesa meira

true

Endursteypa brúardekkið yfir Laxá í Leirársveit

Vegagerðin hóf í gær vinnu við viðgerð á brúnni yfir Laxá í Leirársveit á Hringvegi eitt. Byrjað er að brjóta upp brúargólfið og fyrirhugað að endursteypa dekk hennar. Hraði á vinnusvæðinu verður tekinn niður í 30 km/klst. Önnur akreinin verður lokuð og umferð stýrt með umferðarljósum. Gert er ráð fyrir því að viðgerð á brúnni…Lesa meira

true

Skagamenn fóru tómhentir heim úr Kópavogi

Breiðablik og ÍA mættust í Bestu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og var viðureignin á Kópavogsvelli. Þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitakeppni efri hlutans og mikið undir því Breiðablik er í harðri baráttu við Víking um Íslandsmeistaratitilinn á meðan Skagamenn eru að eltast við dýrmætt Evrópusæti. Fyrri hálfleikurinn bar þess merki að það…Lesa meira

true

Heiðarskóli gerði Degi náttúrunnar góð skil

Dagur íslenskrar náttúru var á mánudag í liðinni viku og af því tilefni fór skólastarfið í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit alfarið fram í Álfholtsskógi við Akrafjall. Nemendur og starfsmenn nutu íslenskrar náttúru í fallegu umhverfi í alls kyns skemmtilegum leikjum og verkefnum. Í hádeginu voru grillaðir hamborgarar sem vöktu mikla lukku og var þetta mjög góður…Lesa meira

true

Fóru í skólabúðir í Vindáshlíð

Vikuna 9. til 13. september dvaldi 9. bekkur Grunnskóla Borgarfjarðar í skólabúðum í Vindáshlíð í Mosfellsbæ þar sem Jörgen Nilsson, sem er oft kenndur við Laugar, sá um skipulag og dagskrá. Frá GBF fóru ellefu nemendur ásamt þeim sem voru nemendur úr samstarfsskólunum á Vesturlandi; Grunnskólanum í Borgarnesi, Auðarskóla í Dalabyggð, Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit og…Lesa meira

true

Gengu í skólann alla vikuna

Grunnskóli Grundarfjarðar tók virkan þátt í átakinu „Göngum í skólann“ í liðinni viku þar sem nemendur voru hvattir til að velja umhverfisvænan ferðamáta. Annar bekkur bar sigur úr býtum þar sem allir nemendur gengu í skólann alla dagana. Áttundi bekkur hreppti annað sætið, en 4. og 10. bekkur deildu þriðja sætinu. „Skólinn þakkar nemendum, foreldrum…Lesa meira

true

Gróðursettu tré við flugvöllinn

Síðasta föstudag fóru vinabekkirnir, 4. og 9. bekkur, í Grunnskólanum í Borgarnesi, og gróðursettu tré sunnan við flugvöllinn á Kárastöðum ofan við Borgarnes. Þetta er árlegur viðburður og hefur Grunnskólinn í Borgarnesi í samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar gróðursett tré á vegum Yrkjusjóðsins allt frá árinu 1992. Pavle Estrajher, formaður skógræktarfélagsins, var með fræðslu fyrir hópinn…Lesa meira

true

Haldið var upp á eins árs afmæli Höfðaborgar

Afmælishátíð Höfðaborgar, þjónustu – og félagsmiðstöðvar í Stykkishólmi sem byggir á kynslóðablöndun, var haldin föstudaginn 20. september. Margt var um manninn og vegleg dagskrá frameftir degi. Tónlistaratriði frá nemendum Tónlistarskóla Stykkishólms, formleg opnun var á nýju rými í húsinu en þar verður alls konar félagsstarf í boði fyrir íbúa í Stykkishólmi, ásamt veglegu hlaðborði veitinga…Lesa meira