Jakob Björgvin S. Jakobsson bæjarstjóri Stykkishólms, Gunnlaugur Auðunn Árnason, Petrína Á. Bjartmars og Þórhildur Pálsdóttir hlýða á Rannveigu Tenchi Ernudóttur, forstöðukona Höfðaborgar. Ljósm. göá

Haldið var upp á eins árs afmæli Höfðaborgar

Afmælishátíð Höfðaborgar, þjónustu – og félagsmiðstöðvar í Stykkishólmi sem byggir á kynslóðablöndun, var haldin föstudaginn 20. september. Margt var um manninn og vegleg dagskrá frameftir degi. Tónlistaratriði frá nemendum Tónlistarskóla Stykkishólms, formleg opnun var á nýju rými í húsinu en þar verður alls konar félagsstarf í boði fyrir íbúa í Stykkishólmi, ásamt veglegu hlaðborði veitinga fyrir gesti og gangandi.

Haldið var upp á eins árs afmæli Höfðaborgar - Skessuhorn