
Pavle að sýna réttu handtökin með geyspuna. Ljósm. borgarbyggd.is
Gróðursettu tré við flugvöllinn
Síðasta föstudag fóru vinabekkirnir, 4. og 9. bekkur, í Grunnskólanum í Borgarnesi, og gróðursettu tré sunnan við flugvöllinn á Kárastöðum ofan við Borgarnes. Þetta er árlegur viðburður og hefur Grunnskólinn í Borgarnesi í samstarfi við Skógræktarfélag Borgarfjarðar gróðursett tré á vegum Yrkjusjóðsins allt frá árinu 1992.