Verðlaunahafar í átakinu „Göngum í skólann.“ Ljósm. grundo.is

Gengu í skólann alla vikuna

Grunnskóli Grundarfjarðar tók virkan þátt í átakinu „Göngum í skólann“ í liðinni viku þar sem nemendur voru hvattir til að velja umhverfisvænan ferðamáta. Annar bekkur bar sigur úr býtum þar sem allir nemendur gengu í skólann alla dagana. Áttundi bekkur hreppti annað sætið, en 4. og 10. bekkur deildu þriðja sætinu.

Gengu í skólann alla vikuna - Skessuhorn