Fréttir

true

Ólsarar unnu stórsigur á KFG og halda í vonina

Víkingur Ólafsvík tók á móti KFG í 20. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á gervigrasvellinum í Ólafsvík. Björn Axel Guðjónsson kom Víkingi yfir eftir um hálftíma leik og á lokamínútu fyrri hálfleiks var staðan orðin 2-0 þegar Ivan Rodrigo Blanco skoraði annað mark heimamanna. Eftir um tíu mínútna leik…Lesa meira

true

Kári tryggði sér sæti í 2. deild með sigri á Magna

Knattspyrnufélag Kára frá Akranesi vann stórsigur á liði Magna frá Grenivík á útivelli á föstudagskvöldið og þeir biðu síðan spenntir í rútunni á heimleið eftir úrslitum úr leik Augnabliks og Árbæjar sem hófst seinna um kvöldið. Jafntefli varð niðurstaðan í þeim leik sem þýddi að Kári gat fagnað af miklum móð sæti sínu í 2.…Lesa meira

true

Fyrsti aflinn á nýju kvótaári

Fyrsti september ár hvert markar upphaf nýs kvótaárs í sjávarútvegi. Þeir sem ekki ná að treina kvóta sinn allt árið, halda þá gjarnan til veiða eftir sumarstopp. Meðfylgjandi mynd var tekin snemma í morgun. Þarna er verið að losa 1,6 tonn úr pokanum hjá dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH frá Ólafsvík. Er þetta fyrsti afli haustsins.…Lesa meira

true

Endurnýjun Sóknaráætlunar Vesturlands í fullum gangi

Nú stendur yfir vinna við nýja Sóknaráætlun Vesturlands sem gilda á árabilið 2025-2029. Í vor var undirritaður samningur þess efnis að ráðgjafateymi Úrbana ynni með SSV að nýrri áætlun. Til að meta árangur fyrri áætlunar og setja fram meginmarkmið og áherslur í næstu áætlun hefur verið leitað eftir víðtæku samráði við mismunandi hópa fólks. Rafrænar…Lesa meira

true

Eldri borgarar í Snæfellsbæ fóru í Færeyjaferð

Í nýliðnum mánuði fór fimmtíu manna hópur frá Félagi eldri borgara í Snæfellsbæ í heimsókn til Færeyja. Hópurinn dvaldi í þrjár nætur á Hótel Þórshöfn sem er vinalegt hótel á besta stað við höfnina. Hómsóttur var vinabær Snæfellsbæjar sem er Vestmanna á Straumey. Þar búa um 1200 manns og vel var tekið á móti hópnum.…Lesa meira

true

Breyttur útivistartími barna og unglinga hefur tekið gildi

Í gær, 1. september, breyttist útivistartími barna og unglinga yfir í vetrartíma og gildir þannig til 1. maí. Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20 á kvöldin og börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22. Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag sem þýðir að…Lesa meira

true

Dilkaslátrun hófst í Borgarnesi í síðustu viku

Sauðfjárslátrun hér á landi hófst í síðustu viku þegar slátrað var fyrstu lömbunum hjá Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey. Með þessu móti er komið á móts við þá bændur sem hafa aðgang að fé sem ekki er á afrétti en einnig kaupendur sem vilja geta keypt kjöt af nýslátruðu. Hjá stóru sláturhúsunum hefst dilkaslátrun á næstu…Lesa meira

true

Fjölbrautaskóli Snæfellinga fagnaði 20 ára afmæli á föstudaginn – myndir

Fjölbrautaskóli Snæfellinga var settur í fyrsta sinn 30. ágúst árið 2004. Markaði skólasetningin tímamót þar sem þetta var fyrsti framhaldsskólinn á Snæfellsnesi. Skólinn þótti framúrstefnulegur á sínum tíma og innleiddi nýja kennsluhætti og aðferðir. Föstudaginn 30. ágúst síðastliðinn var tuttugu ára afmæli skólans fagnað. Margt var um manninn í veislunni og komu fyrrum starfsmenn, nemendur…Lesa meira

true

Dreifing á ruslatunnum gengur vel í Snæfellsbæ

Vel hefur gengið að dreifa ruslatunnum til íbúa vegna innleiðingar á nýju flokkunarkerfi sorps í Snæfellsbæ en búið er að dreifa nýjum sorptunnum á Hellissandi, Rifi og í Ólafsvík. Dreifing á ruslatunnum í dreifbýli Snæfellsbæjar hefjast í næstu viku. Fram kemur á FB síðu Snæfellsbæjar að nú þegar öll heimili í þéttbýlinu eru komin með…Lesa meira

true

Lokafrágangur eftir við nýtt listaverk Erró í Ólafsvík

Í sumar hefur í Ólafsvík verið unnið að uppsetningu listaverks eftir listamanninn Erró, Guðmund Guðmundsson, sem þar fæddist 19. júlí 1932. Hafa verktakar unnið við að setja verkið upp með forskrift frá listamanninum. Staðsetning er á Sáinu, framan við gamla Pakkhúsið. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra gefur Erró Snæfellsbæ verkið í tilefni 30 ára afmælis…Lesa meira