
Dilkaskrokkar í kjötsalnum. Ljósm. Sláturhús Vesturlands
Dilkaslátrun hófst í Borgarnesi í síðustu viku
Sauðfjárslátrun hér á landi hófst í síðustu viku þegar slátrað var fyrstu lömbunum hjá Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey. Með þessu móti er komið á móts við þá bændur sem hafa aðgang að fé sem ekki er á afrétti en einnig kaupendur sem vilja geta keypt kjöt af nýslátruðu. Hjá stóru sláturhúsunum hefst dilkaslátrun á næstu dögum. Hjá Kaupfélagi Skagfirðinga til dæmis verður fyrsti sláturdagur 4. september. Sláturfélag Suðurlands áætlar að hefja sauðfjárslárun 10. september og ljúka slátrun 31. október.