
Davíð Svanur Hafþórsson útskrifaðist úr skólanum síðasta vor en hann mætti og tók lagið fyrir gesti. Ljósmyndir: tfk
Fjölbrautaskóli Snæfellinga fagnaði 20 ára afmæli á föstudaginn – myndir
Fjölbrautaskóli Snæfellinga var settur í fyrsta sinn 30. ágúst árið 2004. Markaði skólasetningin tímamót þar sem þetta var fyrsti framhaldsskólinn á Snæfellsnesi. Skólinn þótti framúrstefnulegur á sínum tíma og innleiddi nýja kennsluhætti og aðferðir. Föstudaginn 30. ágúst síðastliðinn var tuttugu ára afmæli skólans fagnað. Margt var um manninn í veislunni og komu fyrrum starfsmenn, nemendur og aðrir velunnarar skólans í tilefni af þessum merka áfanga. Fjölmargir stigu í pontu ásamt því að flutt var tónlistaratriði.