
Íbúar af erlendum uppruna, búsettir á mismunandi svæðum Vesturlands á fundi.
Endurnýjun Sóknaráætlunar Vesturlands í fullum gangi
Nú stendur yfir vinna við nýja Sóknaráætlun Vesturlands sem gilda á árabilið 2025-2029. Í vor var undirritaður samningur þess efnis að ráðgjafateymi Úrbana ynni með SSV að nýrri áætlun. Til að meta árangur fyrri áætlunar og setja fram meginmarkmið og áherslur í næstu áætlun hefur verið leitað eftir víðtæku samráði við mismunandi hópa fólks. Rafrænar spurningakannarnir hafa verið sendar á styrkþega sem hlotið hafa styrki úr Uppbyggingarsjóði, sem og á sveitarstjórnarfólk á Vesturlandi auk þess sem fundað hefur verið með nokkrum rýnihópum, svo sem ungum íbúum á Vesturlandi, brottfluttum Vestlendingum og nýbúum í landshlutanum.