Hér er hópurinn staddur í Vestmannakirkju. Ljósm. Birgir W Högnesen.

Eldri borgarar í Snæfellsbæ fóru í Færeyjaferð

Í nýliðnum mánuði fór fimmtíu manna hópur frá Félagi eldri borgara í Snæfellsbæ í heimsókn til Færeyja. Hópurinn dvaldi í þrjár nætur á Hótel Þórshöfn sem er vinalegt hótel á besta stað við höfnina. Hómsóttur var vinabær Snæfellsbæjar sem er Vestmanna á Straumey. Þar búa um 1200 manns og vel var tekið á móti hópnum. Bæjarstjórinn Björg á Rógvi bauð hópinn velkominn í fallegri kirkjunni og sagði okkur m.a. frá kirkjunni og bæjarfélaginu sínu. Þá söng kirkjukór Vestmannakirkju lög undir stjórn Magna Christjansen og einnig tók hann nokkur lög sjálfur. Magni er country söngvari og er oft með tónleika í Færeyjum og víðar og fékk hann gott klapp. Á eftir var hópnum boðið í smörrebrauð í safnaðarheimilinu. Þar tóku fleiri til máls og rætt var m.a. um vinabæjarsambandið sem þyrfti af efla. Einnig var rætt um heimsóknir barna sem stunda íþróttir og um sitthvað fleira sem mætti gera. Þá var haldið í Grænanes en það er dvalarheimili bæjarins, mjög vel úr garði gert og með góðu útsýni yfir bæinn. Áður en hópurinn kvaddi Vestmanna fór hluti hans í wisky-smökkun og allir komu glaðir út.

Eldri borgarar í Snæfellsbæ fóru í Færeyjaferð - Skessuhorn