Lokafrágangur eftir við nýtt listaverk Erró í Ólafsvík

Í sumar hefur í Ólafsvík verið unnið að uppsetningu listaverks eftir listamanninn Erró, Guðmund Guðmundsson, sem þar fæddist 19. júlí 1932. Hafa verktakar unnið við að setja verkið upp með forskrift frá listamanninum. Staðsetning er á Sáinu, framan við gamla Pakkhúsið. Að sögn Kristins Jónassonar bæjarstjóra gefur Erró Snæfellsbæ verkið í tilefni 30 ára afmælis Snæfellsbæjar. Áætlaður kostnaður við uppsetningu og frágang þess er um 15 milljónir króna.

Lokafrágangur eftir við nýtt listaverk Erró í Ólafsvík - Skessuhorn