
Breyttur útivistartími barna og unglinga hefur tekið gildi
Í gær, 1. september, breyttist útivistartími barna og unglinga yfir í vetrartíma og gildir þannig til 1. maí. Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20 á kvöldin og börn 13 til 16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22. Aldursmörk miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag sem þýðir að 1. janúar þess árs sem börn verða 13 eða 16 ára lengist útivistartími. Foreldrar og forráðamenn hafa fullan rétt til að stytta þessa tíma. Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum og mega börn ekki vera á almannafæri utan ofangreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum þegar börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla,- íþrótta- eða æskulýðssamkomu.