
Síðasta laugardagsmorgun var söguskilti afhjúpað við Hótel Laxárbakka og var hluti af dagskrá Hvalfjarðardaga. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri flutti ávarp og því næst afhjúpaði Hallfreður Vilhjálmsson, fyrrum sláturhússtjóri við sláturhús SS við Laxá, skiltið og sagði nokkur orð. Að athöfn lokinni var boðið upp á léttar veitingar á Hótel Laxárbakka sem áður hýsti rekstur sláturhússins.…Lesa meira








