Umhverfisstofnun vinnur að tillögu um hvernig megi draga úr veiðum á helsingja. Ljósm. Umhverfisstofnun

Gæsaveiðitímabilið hafið

Veiðitímabilið á grágæs og heiðagæs hófst í gær, þriðjudaginn 20. ágúst og stendur til 15. mars, eins og síðustu ár. Heiðagæsastofninn stendur sem fyrr nokkuð sterkur en hefur þó verið að dragast saman á síðustu árum, samkvæmt mælingum Umhverfisstofnunar. Hámarki náði stofninn árið 2019 þegar hann var talinn vera um hálf milljón fugla. Samkvæmt talningum ársins 2023 stóð stofninn í 335.730 fuglum. Íslenski grágæsastofninn náði hámarki árið 2011 og var þá 112.000 fuglar. Síðan þá hefur grágæs fækkað og bentu talningar ársins 2023 til þess stofninn væri 59.000 fuglar. Í ljósi veikrar stöðu grágæsastofnsins mun sölubann áfram gilda um tegundina.

Gæsaveiðitímabilið hafið - Skessuhorn