Fréttir

true

Ljósufjöll bæra á sér

Frá því á laugardaginn hafa mælst fjórtán jarðskjálftar yfir einn að stærð nærri Grjótárvatni, en það er upp af Mýrum; vestan við Langavatn en sunnan við Hítarvatn. Skjálftahrinan tengist eldfjallakerfi Ljósufjalla sem talið er virkt þrátt fyrir að þar hafi ekki gosið í 1100 ár. Ljósufjallareinin teygir sig frá Kolgrafafirði í vestri að Norðurá í…Lesa meira

true

Bíll brann á þjóðveginum í Melasveit

Klukkan 18:25 í gærkveldi kom upp eldur í flutningabíl sem var á akstri á suðurleið skammt frá Höfn í Melasveit. Bílstjórinn komst út úr bílnum og sakaði ekki. Hringveginum var lokað meðan slökkvi- og hreinsunarstarf stóð yfir og myndaðist löng bílaröð beggja vegna vettvangs, en hreinsun lauk um hálfum öðrum tíma eftir að eldurinn kviknaði.Lesa meira

true

Mannbjörg þegar seglbátur fór á hvolf

Klukkan 19:45 í gærkvöldi barst Neyðarlínunni skilaboð frá vegfarendum í landi um að báti hafi hvolft um 300 metra frá landi á Hvalfirði á móts við Hvammsvík – og að maður sæti á kili bátsins. Allir nærliggjandi viðbragðsaðilar voru ræstir út, meðal annarra sjóbjörgunarsveit Björgunarfélags Akraness. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang í hæsta…Lesa meira

true

Hvalfjarðardagar haldnir víða um sveitina

Hátíðin Hvalfjarðardagar var fyrst haldin árið 2008 og hefur stækkað og þróast í gegnum árin. Skessuhorn náði tali á Andreu Ýr Arnarsdóttur oddvita Hvalfjarðarsveitar en hún er ein af skipuleggjendum hátíðarinnar í ár. „Hátíðin hefur þróast mikið, hún byrjaði sem eins dags hátíð en er nú orðin hátíð með fjölbreyttri helgardagskrá,“ segir Andrea. Skipulagning í…Lesa meira

true

Atvinnuleysi hækkaði á Vesturlandi í júlí

Í nýútgefinni skýrslu frá Vinnumálastofnun má sjá að skráð atvinnuleysi á landsvísu í júlí á þessu ári var 3,1% miðað við 2,8% í fyrra. Atvinnuleysi mælist mest á Suðurnesjum en minnst á Norðurlandi vestra og á Austurlandi. Atvinnuleysi hækkaði á einum stað á landinu frá júní, en það er á Vesturlandi þar sem atvinnuleysi fór…Lesa meira

true

Þýskur stúlknakór syngur í Hallgrímskirkju

Á Hvalfjarðardögum um næstu helgi verða síðustu tónleikar sumarsins í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Þýski stúlknakórinn Pfälzische Kurrende frá Neustadt/Weinstrasse er á tónleikaferð um Ísland 14.-18. ágúst. Kórinn er margverðlaunaður bæði í heimalandi sínu og í Evrópu. Kórinn syngur í Hallgrímskirkju sunnudaginn 18. ágúst kl. 16.00. Stjórnandi kórsins er Carola Bischoff og organisti er Simon Reichert.…Lesa meira

true

Hólmarar fagna 30 ára afmæli Danskra daga

Skipuleggjendur bæjarhátíðarinnar Danskra daga í Stykkishólmi eru nú að leggja lokahönd á dagskrá hátíðarinnar í ár. Fyrsta hátíð Danskra daga var haldin árið 1994 og á hún því afmæli núna. Hátíðin í ár mun að mestu leyti höfða til íbúa Stykkishólms, brottfluttra íbúa og fjölskyldna. „Við sjáum þessa hátíð fyrir okkur þannig. Að íbúar geti…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan sigur á KH

KH og Skallagrímur mættust á laugardaginn í 14. umferð fjórðu deildar karla í knattspyrnu og var viðureignin á Valsvellinum við Hlíðarenda. Það var að duga eða drepast fyrir gestina því fyrir leik voru þeir næstneðstir og sex stigum frá öruggu sæti. Eftir 10-1 sigur á RB í lok júní hafði Skallagrímur spilað sex leiki þar…Lesa meira

true

Stórtap hjá Reyni gegn Uppsveitum

Reynir Hellissandi hefur ekki átt góðu gengi að fagna í B riðli 5. deildar karla í knattspyrnu í sumar. Reynir hefur spilað 14 leiki af 16 og hefur aðeins unnið einn leik, gert þrjú jafntefli og tapað tíu og markatalan er 14:64. Eini sigurleikur liðsins kom í lok júní gegn Afríku sem er enn án…Lesa meira

true

Tvöfalt hestamannamót var haldið á Æðarodda – úrslit

Mótanefnd hestamannafélagsins Dreyra stóð fyrir tvöföldu móti um liðna helgi á Æðarodda þegar fram fór samhliða Íþróttamót Dreyra og Áhugamannamót Íslands. Þátttakendur voru hátt í 200 og komu víða af landinu. Á Áhugamannamóti Íslands áttu þátttökurétt allir sem náð hafa 22 ára aldri og hafa ekki keppt í meistaraflokki í íþróttakeppni á síðastliðnum fimm árum.…Lesa meira