Fréttir

true

Kári í toppsætinu eftir fjórða sigurinn í röð

Lið Kára frá Akranesi hefur farið mikinn síðustu vikurnar í þriðju deild karla í knattspyrnu. Frá því í byrjun júlí hafa þeir unnið sex leiki af sjö og gert eitt jafntefli og eru nú með sex stiga forskot á toppi deildarinnar þegar sex umferðir eru eftir. Markatalan í þessum sjö leikjum er 21-3 og þeir…Lesa meira

true

Undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu

Hreppsnefnd Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 1. ágúst síðastliðinn tillögu oddvita þess efnis að heimila að farið verði í undirskriftasöfnun vegna almennrar atkvæðagreiðslu um ákvörðun hreppsnefndar, sem þegar hefur verið samþykkt, og snýr að formlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð. Nokkrir íbúar höfðu áður farið fram á að slík undirskriftasöfnun færi fram. „Hreppsnefnd samþykkir einnig að undirskriftarsöfnun…Lesa meira

true

Víkingur með nauman sigur á botnliðinu

Eftir tvo tapleiki í röð náði Víkingur Ólafsvík loks sigri í 2. deild karla í knattspyrnu þegar botnlið Reynis frá Sandgerði kom í heimsókn á Ólafsvíkurvöllinn á laugardaginn. Í síðustu umferð vann Reynir óvæntan sigur á KFA, 3-1, en fyrir þann leik hafði Reynir aðeins náð einum sigri í síðustu sjö leikjum. Heimamenn í Víkingi…Lesa meira

true

Sextíu manns gengu undir slagorðinu Heiðar í háska

Í gær gekkst fólk úr sveitinni, Landvernd og Mótvindur fyrir göngu um Grjótháls sem liggur milli Þverárhlíðar og Norðurárdals í Borgarfirði. Um sextíu manns tóku þátt í göngunni en lagt var af stað frá Króki að morgni og gengið undir slagorðinu „Heiðar í háska.“ Göngufólk kynnti sér þá náttúru sem áformað er að leggja undir…Lesa meira

true

Hulda og Tómas sigruðu í Hvaleyrarbikarnum

Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigruðu í Hvaleyrarbikarnum sem lauk í Hafnarfirði í gær. Mótið var lokamótið á stigamótaröð GSÍ á þessu ári. Hulda Clara setti þar punktinn yfir i-ið á glæsilegu sumri hjá henni hér heima því hún varð einnig Íslandsmeistari í síðasta mánuði…Lesa meira

true

Dagurinn í Gufuá var ógleymanlegur

„Við fórum í Gufuá í Borgarhreppi félagarnir Jón Eiríkur og ég fyrir fáum dögum,“ sagði Gylfi Jón Gylfason í samtali við Skessuhorn. „Það tók lax á veiðistað nr 45 sem lét Jón Eirík elta sig 40 metra niður fyrir hylinn. Tökum annan fisk í draumfögrum veiðistað sem ég hef kallað Berghyl af augljósum ástæðum. Seinasti…Lesa meira

true

Listavinnuskólinn afhjúpar afraksturinn

Í ágúst var starfræktur listavinnuskóli í Grundarfirði í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Thora Karlsdóttir listamaður hafði umsjón með verkefninu en Listavinnuskólinn býður unglingum að taka þátt í daglegum störfum listamanns og aðstoða listamanninn við undirbúning og framkvæmd á listaverkum. Föstudaginn 9. ágúst var svo haldin sýning á verkum sem hópurinn vann að. Þar…Lesa meira

true

Sýningin Milli vita í Akranesvita

Svandís Egilsdóttir er nú með opna sýningu í Akranesvita. Heiti sýningarinnar; Milli vita II, vísar til trílógíu sem Svandís stendur fyrir þrjú sumur í röð í nokkrum vitum um landið. „Í málverkinu fer ég oftast af stað með óljósa hugmynd eða ákvörðun um hreyfingu eða lit út frá stað eða upplifun, en meðhöndla svo liti…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á síðasta Ferguson dag sumarsins – myndasyrpa

Í gær var boðið upp á svokallaðan Ferguson dag á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Þetta var þriðji slíki dagurinn í sumar og sá fjölmennasti. Blíðskaparveður var í Borgarfirði og streymdi að fólk úr ýmsum landshlutum, meðal annars bændur sem nýttu tímann milli slátta til að gera sér dagamun og hitta mann og annan. Landbúnaðarsafnið hélt…Lesa meira

true

Nýliðunarstuðningur í landbúnaði

Matvælaráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir um nýliðunarstuðning í landbúnaði, en sækja þarf um fyrir 1. september nk. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Uppfylla þarf nokkrar kröfur, svo sem að umsækjendur séu á aldrinum 18-40 ára á því ári sem óskað er eftir stuðningi. Þeir þurfa…Lesa meira