Gönguhópurinn á áningarstað. Ljósm. khg

Sextíu manns gengu undir slagorðinu Heiðar í háska

Í gær gekkst fólk úr sveitinni, Landvernd og Mótvindur fyrir göngu um Grjótháls sem liggur milli Þverárhlíðar og Norðurárdals í Borgarfirði. Um sextíu manns tóku þátt í göngunni en lagt var af stað frá Króki að morgni og gengið undir slagorðinu „Heiðar í háska.“ Göngufólk kynnti sér þá náttúru sem áformað er að leggja undir iðnaðarsvæði fyrir vindorkuver. Áform eru uppi um að minnsta kosti fjórtán, tvöhundruð metra háar vindtúrbínur með tilheyrandi steypumannvirkjum, vegagerð og jarðraski á þessu svæði. Nær allir íbúar og landeigendur í nágrenni við fyrirhuguð vindmylluáform hafa lýst sig andvíga byggingu vindorkuvera á svæðinu og veiðifélag Norðurár hefur sent frá sér harðorða og einróma ályktun gegn áformunum.

Sextíu manns gengu undir slagorðinu Heiðar í háska - Skessuhorn