Jón Gylfi að kasta fyrir laxinn í Gufuá.

Dagurinn í Gufuá var ógleymanlegur

„Við fórum í Gufuá í Borgarhreppi félagarnir Jón Eiríkur og ég fyrir fáum dögum,“ sagði Gylfi Jón Gylfason í samtali við Skessuhorn. „Það tók lax á veiðistað nr 45 sem lét Jón Eirík elta sig 40 metra niður fyrir hylinn. Tökum annan fisk í draumfögrum veiðistað sem ég hef kallað Berghyl af augljósum ástæðum. Seinasti laxinn kom svo upp úr Núllinu sem sumir nefna Óperuna vegna þess að maður er eins og tenor á sviði þegar maður er að þenja sig með flugustöngina.

Dagurinn í Gufuá var ógleymanlegur - Skessuhorn