
F.v. Steinunn Cecilía Steinarsdóttir, Sindri Snær Hinriksson, Mýrún Lotta Loftsdóttir Klee og Thora Karlsdóttir við fordómaþvottavélina. Ljósm. tfk
Listavinnuskólinn afhjúpar afraksturinn
Í ágúst var starfræktur listavinnuskóli í Grundarfirði í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Thora Karlsdóttir listamaður hafði umsjón með verkefninu en Listavinnuskólinn býður unglingum að taka þátt í daglegum störfum listamanns og aðstoða listamanninn við undirbúning og framkvæmd á listaverkum. Föstudaginn 9. ágúst var svo haldin sýning á verkum sem hópurinn vann að. Þar mátti finna fordómaþvottavél, heilaþvottavél og málverk sem hópurinn vann um hlýnun jarðar. Gestum var boðið í ókeypis fordómaþvott og heilaþvott í Grundarfirði þegar þessi efnilegi hópur afhjúpaði listaverkin.