
Sýningin Milli vita í Akranesvita
Svandís Egilsdóttir er nú með opna sýningu í Akranesvita. Heiti sýningarinnar; Milli vita II, vísar til trílógíu sem Svandís stendur fyrir þrjú sumur í röð í nokkrum vitum um landið. „Í málverkinu fer ég oftast af stað með óljósa hugmynd eða ákvörðun um hreyfingu eða lit út frá stað eða upplifun, en meðhöndla svo liti og form í framhaldi af því sem gerist tilviljanakennt á striganum og í flæðinu. Samtímis vinn ég með það sem gerist inni í mér. Ég mála í átt að því sem mér finnst hafa einhverja merkingu eða þýðingu til að koma upplifun til skila. Oft upplifun af veru minni í náttúrunni,“ segir Svandís í tilkynningu.