Fréttir

true

Skagakonur gerðu jafntefli gegn Fram og sigruðu Selfyssinga

Lið Skagakvenna spilaði tvo leiki á sumarfrí tíma Skessuhorns. Mætti liði Fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal, 25. júlí síðastliðinn. Liðin skiptu með sér stigunum í 1:1 jafntefli. Skagakonur byrjuðu leikinn vel og Erla Karitas Jóhannessdóttir kom þeim yfir strax á sjöttu mínútu leiksins. Héldu þær forystunni þar til um fimmtán mínútum fyrir leikslok þegar heimakonur…Lesa meira

true

Að taka þátt og njóta leiksins

Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi lauk með heilmikilli tónleikadagskrá og glæsilegri flugeldasýningu í gærkvöldi. Að sögn mótshaldara hefur allt gengið vel fyrir utan sinueld sem kviknaði í gærkvöldi á flugeldasýningunni en var fljótt slökktur af Slökkviliði Borgarbyggðar. Mótið var vel sótt, um 1.000 þátttakendur voru skráðir til leiks og nokkur þúsund manns voru í bænum…Lesa meira

true

Lognið vantar

Enn og aftur nálgast djúp lægð nálgast Ísland með tilheyrandi leiðindaveðri um allt land næsta sólarhringinn. Veðurstofan greinir frá þessu. Þó verður veðrið skaplegt hér á Vesturlandi. Það gengur í norðaustan hvassviðri eða storm syðst á landinu frá Öræfum og vestur undir Eyjafjöll. Talsverð eða mikil rigning fylgir lægðinni á Suðausturlandi og Austfjörðum og má búast…Lesa meira

true

Listasmiðjan á Bifröst sýnir í Safnahúsi

Í ágúst má sjá verk frá Listasmiðjunni á Bifröst í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi undir heitinu „Sköpun er ekki valkostur heldur nauðsyn.“ Það er Christina Attensperger sem starfrækir listasmiðjuna fyrir flóttafólk og hælisleitendur sem sjálfboðaliði Rauða Krossins í samstarfi við Borgarbyggð og Háskólann á Bifröst. Hún stóð líka fyrir sýningu úkraínskra kvenna í Safnahúsinu fyrir…Lesa meira

true

Hlýjast vestanlands í dag en hvessir á morgun á Snæfellsnesi

Það hvessir aftur í dag sunnan- og suðaustanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu. Í Öræfum við Svínafell og Skaftafell má reikna með hviðum allt að 35-40 m/s frá hádegi og fram á kvöld. Eins í Mýrdal og sums staðar undir Eyjafjöllum með ANA-átt frá því um miðjan dag og fram á nótt.  Á morgun hvessir enn frekar…Lesa meira

true

Stemning á Unglingalandsmóti

Mikil stemning var á setningu Unglingalandsmóts UMFÍ í Borgarnesi í gærkvöldi. Fjöldi manns var í brekkunni og fylgdist með inngöngu ungmennanna sem báru fána síns félags inn á völlinn. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir heiðraði viðburðinn með nærveru sinni og flutti ávarp og er þetta annar viðburðurinn sem hún sækir í sinni embættistíð; hún hafði fyrr…Lesa meira

true

Ekki slegið svo seint frá árinu 1967

Rigningatíð sumarsins hefur gert nokkurn óskunda í búskap á Vesturlandi, en þó er það misjafnt eftir svæðum. Nefna má að heyskapur er nú loks hafinn á Grund í Skorradal og hefur ekki byrjað þetta seint síðan árið 1967. Þetta kemur fram í Facebook færslu Pétur Davíðssonar bónda á Grund í morgun. Hann segir enn fremur…Lesa meira

true

Úr sarpinum – Frásögn af því þegar sinnepsgassprengjur fóru að berast

Áfram höldum við að birta áhugaverð viðtöl og frásagnir úr sarpi Skessuhorns. Í jólablaði árið 2016 var sagt frá baneitruðum eiturefnasprengjum sem var varpað var í Faxaflóann: Sementsverksmiðjan er ekki lengur vinnustaður sem iðar af lífi, þar sem hundruðir höfðu atvinnu. Í dag stendur verksmiðjan að mestu leyti auð þótt þar sé geymt og afgreitt…Lesa meira

true

Forsetahjónin heimsækja Borgarnes

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, heimsækja Borgarnes í dag, föstudaginn 2. ágúst auk þess að fara til Vestmannaeyja. Þau taka þannig þátt í Unglingalandsmóti UMFÍ á fyrsta degi forseta í embætti. Forsetahjónin hefja daginn á heimsókn til Eyja og fara þaðan í Borgarnes, þar sem Unglingalandsmótið fer fram um verslunarmannahelgina eins…Lesa meira

true

Landsmótið hafið

Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi hófst í gær með móttöku og skráningu þátttakenda í Hjálmakletti/Menntaskóla Borgarfjarðar. Fjölmennt er því í Borgarnesi og auk þessa er talsvert um að ferðamenn sæki staðinn heim. Gríðarlega margir borgfirskir sjálfboðaliðar eru mættir til starfa við vaktir, umsjón og veitingasölu svo nokkuð sé nefnt. Tjaldsvæði mótsins er rétt fyrir ofan bæinn…Lesa meira