Stemning á Unglingalandsmóti

Mikil stemning var á setningu Unglingalandsmóts UMFÍ í Borgarnesi í gærkvöldi. Fjöldi manns var í brekkunni og fylgdist með inngöngu ungmennanna sem báru fána síns félags inn á völlinn. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir heiðraði viðburðinn með nærveru sinni og flutti ávarp og er þetta annar viðburðurinn sem hún sækir í sinni embættistíð; hún hafði fyrr um daginn tekið þátt í Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum.

Stemning á Unglingalandsmóti - Skessuhorn