Fréttir

true

Meðalumferð á dag í júnímánuði

Vegagerðin gaf nýverið út upplýsingar um meðalumferð á nokkrum lykil-teljurum um hringveg Íslands. Á Vesturlandi eru nokkrir lykil-teljarar en einnig eru teljarar á helstu stofnvegum svæðisins. Umferðartölur frá 2023 og 2024 standa nokkuð í stað en helstu tölur eru þessar: Hringvegur um Hvalfjarðargöng: Meðalumferð á dag 10.589 bílar. Hringvegur um Hafnarfjall: Meðalumferð á dag 7.246…Lesa meira

true

Ísak Birkir kominn í undanúrslit á HM í keilu

Þessa dagana fer fram heimsmeistaramót í keilu fyrir leikmenn 21 árs og yngri. Spilað er í Suður-Kóreu og koma keppendur frá 39 löndum. Mót þetta er nú haldið í 17. skipti en það var síðast í Helsingborg í Svíþjóð árið 2022. Í einstaklingskeppni á mótinu er spilað í þremur riðlum og 16 bestu komast áfram…Lesa meira

true

Langstærsta pílumót sem haldið hefur verið á Akranesi

Irish Open mótið í 501 tvímenningi í pílukasti fór fram í Íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum fimmtudaginn 4. júlí. Alls mættu 37 lið til leiks sem er næstum tvöföldun frá síðasta ári. Margir af bestu pílukösturum landsins tóku þátt sem og fólk sem hefur aldrei tekið þátt í pílumóti áður. Mótið tókst vel en því stýrði Ingibjörg…Lesa meira

true

Lítilsháttar samdráttur í fiskútflutningi á fyrri árshelmingi

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam tæplega 26 milljörðum króna í júní samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum um vöruviðskipti sem Hagstofan birti í vikunni. Það er um 4,5% samdráttur í krónum talið miðað við júní í fyrra. Í Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, kemur fram að lítil breyting hafi verið á gengi krónunnar á tímabilinu og er samdrátturinn mældur í erlendri mynt…Lesa meira

true

Sú þýska var langt í frá fyrst til að lyfta Húsafellshellunni

Í Skessuhorni í gær og fleiri miðlum voru fréttir þess efnis að þýsk kraftakona hafi verið fyrst kvenna til að lyfta Fullsterkum á Djúpalónssandi. Fylgdi sögunni á Instagram síðu konunnar að hún hafi áður verið fyrst kvenna til að lyfta Húsafellshellunni margfrægu. Hið síðara er rangt og beðist velvirðingar á því að þessi skrif hinnar…Lesa meira

true

Einn alvarlega slasaður eftir árekstur á Holtavörðuheiði

Harður árekstur tveggja bíla varð síðdegis í gær á norðanverðri Holtavörðuheiði. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins og voru tvær þyrlu Landhelgisgæslunnar kallaðar á vettvang. Loka þurfti veginum fyrir umferð í nokkrar klukkustundir vegna óhappsins. Beita þurfti klippum á annan bílinn og var einn alvarlega slasaður. Fimm til viðbótar voru fluttir með þyrlunum á sjúkrahús og…Lesa meira

true

Skallagrímspiltar léku sér í veðrinu á Akureyri

Fimmti flokkur Skallagríms tók þátt á N1 mótinu á Akureyri um síðustu helgi. Skallagrímur var með tvö lið á mótinu og stóðu drengirnir sig með stakri prýði. Skallagrímur – 1 endaði í 3. sæti í sínum riðli og Skallagrímur – 2 endaði í 9. sæti af 16 liðum í sínum styrkleika. Veðrið á Akureyri hefur…Lesa meira

true

Borgarbyggð áætlar að þörf sé fyrir um 500 íbúðir á næstu tíu árum

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur staðfest endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2024. Áætlunin inniheldur miðspá um mannfjöldaþróun í sveitarfélaginu, sem gerir ráð fyrir að íbúum þar muni fjölga um 18% næstu tíu árin. Íbúafjölgun á síðasta ári var mun meiri en fyrri áætlun hafði gert ráð fyrir og mannfjöldaspá því endurskoðuð með tilliti til þess. Þetta…Lesa meira

true

Systkini frá Tjörn koma fram á tónleikum í Hallgrímskirkju

Næsti viðburður í Sumartónleikaröð Hallgrímskirkju í Saurbæ verður sunnudaginn 14. júlí, kl. 16.00. Það eru systkinin Ösp, Björk og Örn Eldjárn frá Tjörn í Svarfaðardal sem flytja eigin tónlist undir nafninu Blood Harmony. „Samstarf þeirra systkinanna hófst árið 2021 í covid-faraldrinum þegar þau breyttu kjallara heimilisins í tónlistarstúdíó og fóru að vinna nánar með eigin…Lesa meira

true

Listsýningin Lúpínufífl í Landsbankahúsinu

Ungmenni á aldrinum 14 ára til 17 ára standa fyrir listsýningunni Lúpínufífl í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi. Sýningin er einungis opin í dag milli klukkan 13 og 15. Alls voru 18 unglingar sem tóku þátt í listsýningunni. Eins og nafn hennar gefur til kynna eru þar til sýnis og sölu verk unglinga um íslenska náttúru…Lesa meira